| Sækja um starf |
|
|
|
| Skrifað af Vefstjóri |
| Fimmtudagur, 06 Nóvember 2008 00:00 |
Umsókn um starf á vegum IAESTE fer þannig fram:
Ef upp koma spurningar eða athugasemdir erum við ávallt tilbúin til að aðstoða.
NemendaskiptinNemendaskiptin ganga þannig fyrir sig að nemendur leggja inn staðlaða umsókn til IAESTE-fulltrúa sinnar skorar fyrir 1. desember. Í henni tilgreinir nemandinn í hvaða námi hann er og hvert hann vill fara. Í janúar hittast öll aðildarfélögin á aðalfundi IAESTE og skipta á nemum og störfum. Þegar heim er komið fær umsækjandinn upplýsingar um það fyrirtæki sem honum var úthlutað og ef honum lýst vel á, þá sækir hann um starfið. Svo einfalt er það. IAESTE styður vel við bakið á nemunum sínum alla leið og tryggir að hann geti notið dvalarinnar áhyggjulaus. Að taka þátt í vinnuskiptum á vegum IAESTE veitir nemendum ekki aðeins alþjóðlega starfsreynslu. Mikið félagslíf er hjá hópunum og ferðalög og aðrir atburðir í hverri viku.Vinnuskipti IAESTE eru því vettvangur ævintýra, ferðalaga, vina, reynslu og nýrrar sýnar á heiminn.
|
| Síðast uppfært ( Mánudagur, 05 Október 2009 09:14 ) |
Sækja um starf


