| Um félagið |
|
|
|
| Skrifað af Vefstjóri |
| Fimmtudagur, 06 Nóvember 2008 00:00 |
|
IAESTE (The International Association for the Exchange of Students for Technical Experience) var stofnað árið 1948 við Imperial Collage í Lundúnum. Stofnandinn, Mr James Newby, boðaði til fundar með félagasamtökum frá 10 Evrópu löndum til að koma á betri skilningi milli þjóðanna, eftir seinni heimsstyrjöldina. Síðan þá hafa samtökin vaxið hratt og í dag hafa bæst yfir 80 þjóðir á alheimsvísu við samtökin sem hafa skipt um 300.000 nemendum. Þetta þýðir að árlega skiptir IAESTE um 6000 nemendum og spilar þannig lykilhlutverk í menntun verkfræði- og raunvísindanema sem í framtíðinni munu byggja upp hagkerfi heimsins. En hver er raunveruleg starfsemi og markmið IAESTE? Þrjú meginmarkmið IAESTE eru að:
Starfsemi IAESTE miðast því öll að því að ná þessum markmiðum. Aðrir stórir þættir í starfsemi félagsins eru að veita nemunum öryggi, hjálpa þeim að aðlagast nýju umhverfi og samfélagi, sýna þeim landið, og svo margt fleira.
NemendaskiptinNemendaskiptin ganga þannig fyrir sig að nemendur leggja inn staðlaða umsókn til IAESTE-fulltrúa sinnar skorar fyrir auglýstan lokafrest, en hana má finna á síðunni. Í henni tilgreinir nemandinn í hvaða námi hann er og hvert hann vill fara. Í janúar hittast öll aðildarfélögin á aðalfundi IAESTE og skipta á nemum og störfum. Þegar heim er komið fær umsækjandinn upplýsingar um það fyrirtæki sem honum var úthlutað og ef honum lýst vel á, þá sækir hann um starfið. Svo einfalt er það. IAESTE styður vel við bakið á nemunum sínum alla leið og tryggir að hann geti notið dvalarinnar áhyggjulaus. Að taka þátt í vinnuskiptum á vegum IAESTE veitir nemendum ekki aðeins alþjóðlega starfsreynslu. Mikið félagslíf er hjá hópunum og ferðalög og aðrir atburðir í hverri viku.
|
| Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 06 Nóvember 2008 17:42 ) |
Um félagið


